fimmtudagur, janúar 26, 2006
heyja.
eruði að grínast hvað ég var góður í dodgeball í gær! mvp!
laugar í gær. það voru tveir stöðumælaverðir á vakt kl.20.00. ég meina hvað er það. ég var reyndar á tveimur jafnfljótum en fékk reyndar sekt fyrir skömmu - lagði á perfectly fínum stað en nei nei. 3450 kall. en eru þeir bara í o.t. til miðnættis?
lyfti með óskari (þar sem ég skrópa alltaf kl.18.00) - tók hlyn á etta og var í kennslupakkanum allan tíman. var örugglega orðinn soldið pirrandi í lokinn (ekki það að hlynur sé pirrandi). var svo "dreginn" á the purple onion. jesús hvað ég fékk gott stöff þar. man ekki alveg hvað það heitir en það á ekki eftir að líða langt þanngað til ég kíki þanngað aftur.
posted by 4fl at 12:13 e.h.
miðvikudagur, janúar 25, 2006
Já.
menn ekki alveg sáttir við excel skjalið mitt! það komast náttúrulega ekki allir inn í það! - og svo er spurning hvort allt sé skráð. t.d. þegar skipt er um markmann í miðjum leik! eða þegar úrslitamark er gargað alveg í lokinn! en alla veganna, rúlluðum yfir unga á þarsíðustu æfingu með vinstri! svo vann eysteinn óverðskuldugan sigur á æfingu í gær - reyndar fór jay hamförum í okkar liði!!
anyway. smá leiðindi í mér núna! hvernig getur simmi í idol verið á listanum yfir kynþokkafyllstu menn landins? svo voru einhverjir aðrir skrýtnir kostir! og hvernig getur væmna lagið með jónsa verið á topp 5 listanum á tónlist.is og þættirnir á sirkús. hvað er það?
gúffaði afar spes um helgina! fondú á laugardaginn og raklett á sunnudaginn. þokkalega gott kaffi. en langt síðan mar fékk bara plain heimatilbúinn börger. set það í nefnd.
Það er vinaleikur í gangi í langó hjá kennurum. minn vinur feitt að standa sig. sem og ég. svo endar þetta í einhverri stemmningu á föstudaginn. vantar skemmtiatriði til að sýna - any thoughts?
hverja eiga manchester aftur í meistaradeildinni?
Datt á ljóðakvöld í MS í gær. þar sem hallgrímur helgason, gerður kristín, andri snær og aldís guðbrandsdóttir fluttu sitt efni. stóðu sig vel - og þokkalega nett að koma aftur í skálholt, þar sem b.t.w. allt er morandi út í plasma skjáum.
Low C með supergrass. svo rosalegt lag að ég smellti mér á diskinn. ja há.
dodgeball með fjórða í kvöld. kíkti á myndina í gær til að rífresha reglurnar. það verður stuð.
heyrumst.
posted by 4fl at 1:42 e.h.
|