fimmtudagur, nóvember 02, 2006
já.
vetrarfríið að skella á. london á morgun og guðrún farin til köben. tómt kæruleysi á mönnum.
við skulum nú bara ekkert ræða leikinn á æfingu í gær. sá hin sami sem gerir það fær högg. og maður búinn að bíða í 3 á eftir að tækla hansa á æfingu og er svo settur í sama lið - hvað er það.
West Ham v Arsenal á sunnudaginn. svo fullham á laug ef dabbi plöggar miða. annars hlýtur nú heiðar að lesa bloggið mitt! kaupi lakkrís fyrir kallinn í staðinn.
og þetta verður ekki eyðsluferð (jev).
posted by 4fl at 1:29 e.h.
ó já.
knattspyrna eða ballett! pæjumótið eða shellmótið! spennó!
- - - - -
posted by 4fl at 1:17 e.h.
þriðjudagur, október 31, 2006
hi.
eruði að grínast hvað ég er að hanna stofuna mína skemmtilega. annað en hinum megin! farið svo að kíkja í heimsókn. bíð bara eftir kynningu frá löggu, pípara og fleirum :-)
er kominn með ógeð af sleikjóum. það voru svona 100 sleikjóar afgangs eftir síðustu fríhafnarferð og ég er kominn í 4 á dag. ekki nógu gott.
fyrsta æfingin í mfl í gær. bara stemmning, nema þegar Alli tók sig til og pullaði fanta move á mig og skoraði. frekar illa gert að láta mig líta svona illa út á fyrstu æfingu eftir frí. en ég var samt flair. haukur var alltaf inn í í reit og egill gat ekkert þar sem að hann fékk hárþurrku rétt fyrir æfingu.
posted by 4fl at 12:37 e.h.
ho.
guðrún dobblaði mig að prófa lýsi um daginn. veit eiginlega ekki með það. minnir samt að dadda hafi pínt etta oní mig í denn. enda hraustari en ljónið í dag.
hékk 5 tíma og 15 mínútur út á gervigrasið í gær. dobblaði egillt og rabba að dæma, auk mín, egils og kidda (sem var eiginlega slakastur í gær). reyndi líka við brósa, sindra og rúnar g en fékk meldingar sem ég var svona lala að trúa, enda frekar kalt í gær.
fór á the departed. hún er í ruglinu. áana núna!
fór með drasl símann í viðgerð enn eina ferðina í síðustu viku. fékk lánssíma í staðinn sem ég er að fíla miklu betur þannig að ég er búinn að treina að sækja hinn í aðeins of langan tíma.
líka skemmtilegt að segja frá því að egill á eins síma og ég læsti honum í gær þar sem að ég hélt að það væri minn sími og sló mínu lykilorði þrisvar inn og þá bað síminn um puk númerið - líklegt að egill sé bara með það í skúffunni sinni!
holloween í dag. klikkaði á graskeri í gær. það var orðin hefð að carva svoleiðis út og koma með í skólann og vera með bitch ass enskutíma um holloween. man þegar ég gerði svo óscary grasker þegar ég var út í erie að það var hlegið að mér. var svo indíáni í partýinu og lenti í neðasta sæti í búningakeppninni.
en það er jafnvel silent hill í kvöld á eftir barca og chelskí.
held að dýnuboltaseasonið sé búið! get samt ekki hætt eftir að hafa kúkað svo á mig í síðustu tveimur skiptum. ég meina, undir Simma og Hansa er eiginlega bara skandall! og by the way, simmi skoraði bara dörtí frákastsmörk.
ekkert annars?
posted by 4fl at 12:28 e.h.
|