fimmtudagur, júlí 05, 2007
jamm.
var ekki nógu spes í þjálfaragolfinu í gær. kiddi og rabbi voru með leiðindi, og eymi er náttúrulega í golfi daglega. vann samt fyrstu og síðust holuna á setberginu eins og ég ætlaði mér og var líka að lúkka mest. skulda samt kippu :-(
egill mágur hringdi í mig frá keldunni áðan og leyfði mér að heyra neighborhood#1 með kóngunum í arcade fire. það er víst allt í leðju adna en samt fjör. djöfull skal ég komast 2009 :-)
Tommi bara settur í kaf í morgun. rúllaði því upp eins og ekkert var. annars bara verið að tana!
posted by 4fl at 5:04 e.h.
þriðjudagur, júlí 03, 2007
jes.
það er búið að hertaka sigluvog fimm af svona silljón kóngulóm. ein gerði bókstaflega árás á mig og guðrúnu áðan í sófanum. við erum að tala um að hún var á niðurleið og ætlaði í okkur. hún ryksuguð á nóinu.
já, kallinn kominn með linsur. tók bara öld í dag að kenna mér að troða essu á mig. fanný var líka með leiðindi. lúkka samt með þær og held að þær bættu smá my passing í dag, en pústið er í ruglinu :-( bekkurinn er samt allur að koma til. jenni comeback var samt frekar lummó á crocks í gymminu áðan.
fyrstu níu holurnar verða teknar á morgun. frí hjá gunna og alles. sveiflan samt ekki klár.
minn maður farinn að rúlla sér á magann eins og ljónið. við náttúrulega afar montin yfir þessu og látum hann sýna þetta mörgum sinnum á dag. annars bara sól.
posted by 4fl at 10:19 e.h.
mánudagur, júlí 02, 2007
hæ.
fyrsti tíminn í ungbarnasundi í morgun. Algjör snilld maður. Veit ekki hvor vakti meiri athygli mæðranna 10 sem voru mættar hressar upp í Mosó, ég eða tómas! kallinn var náttúrulega flottastur í nýju skýlunni sinni og í sokkabuxum!! gerði allar kúnstir eins og hann væri tíu ára, ah, nema kafa - það kemur næst :-)
það var die hard í gær. ertu að grínast hvað hún var nett. þvílíkt möst sí - alla veganna fyrir svona bíómyndanörda eins og mig sem er búinn að vera í bíósvelti undanfarna mánuði.
vann kidda og egil örugglega í kubb áðan. vann mér líka inn (grænmetis) kvisnon í hádeginu. nett nett.
þróttur - fjölnir í kvöld. hljótið að láta sjá ykkur í sólinni!
posted by 4fl at 3:14 e.h.
|