þriðjudagur, júní 10, 2003
heyja.
hvar á að byja?
afmælisboð hjá rakel og co. á laugardagskvöldinu. karíókí djamm. tók ekki lagið að þessu sinni.
lét ella og þá um það. fór samt niðrí bæ. ótrúlegt en satt. gerist jafn oft og "steini stesjon" skorar á æfingu -
og jafn oft og bjöggi vakar yfir ræmu. ok komið gott! en það var stuð. maggi audda ölóður að vanda. eins
og belja að vori - búinn að lesa í 7 mánuði streit. einnig var frekar mikil læti í foreldrum halla!! held að þeim hafi
verið vísað heim skömmu eftir miðnætti!!
kíktum á stelpurnar í dag - og vorum rukkaðir inn. náði ekki að díla við manninn í afgreiðslunni.
var ekki sáttur við þær. áttu ekki að tapa svona stórt. algjör aulamörk eins og síðast. eins gott að
þær vinna á sunnudaginn. við að keppa næst á fredag - v njarðvík - away. það verður stuð. en 1.flokkur
er að keppa á morgun. þá getur fólk séð ásmund haraldsson keppa á ný!
alveg að komast í þokkalegt stand kallinn. ási var by the way pabbi minn í bandaríkjum um árið.
stóð sig alveg ágætlega.
duttum á old school áðan - hún var þokkalega góður "baldur"
(þ.e. fín afþreying-2 og hálf stjarna-krefst ekki mikillar hugsunar-inniheldur yfirleitt byssur eða brjóst).
var alla veganna skárri en síðasta mynd sem ég sá - og á þá mynd fór ég á með einum kvennmanni!
toppið það! segi samt ekki hverjum.
styttist í útskriftarveisluna. pabbi bauðst til að redda bjórnum. sem sagt nóg af bjór.
samt leikur fljótlega eftir helgi. svekkjandi hallur og jens! spurning með ræðu!
ok sör. danni frændi afmæli í dag. nettör.
posted by 4fl at 1:09 f.h.
|