föstudagur, mars 09, 2007
jó.
fredag. frekar nett, fyrir utan miðnæturæfingu upp í breiðholti! ég er samt hress. með "take a look at my girfriend" í spilaranum.
double dobblaður í gær. í gúff á stjörnutorgi og svo í "the devil wears prada" gláp! sóley og guðrún ansi frekar.
er með kinder eggja obsession á háu stigi. ekki nógu sniðugt. ég er 28 sko.
3oo að detta í hús. skal koma mér á ekura powersýningu á þessa mynd!
Anyways. góða helgi.
posted by 4fl at 7:31 e.h.
þriðjudagur, mars 06, 2007
jó.
lag legt liv er pool. komnir í átta liða. og erum við ekkert að grínast með hvað gerðist eftir inter og valencia leikinn, jesús.
badminton í dag með fjórða. djöfull var ég nettur. engu gleymt. sagan segir líka að minn gamli keppinautur fari að lenda á klakann. festum klárlega game einu sinni í viku.
neon bible. í spilaranum?
posted by 4fl at 10:07 e.h.
sunnudagur, mars 04, 2007
jeppa.
herrakvöldið gekk bara nokkuð vel á föstudaginn. engir skandalar og menn flestir afar hressir. hefði alveg verið til í nokkur málverkin sem voru til sölu. læt mér duga verkin hans óskars að sinni (þetta var ekki móðgun sko).
vantaði reyndar pabba á kvöldið. hann skellti sér til london um helgina. og fór á west ham - tottenham í dag. skemst er frá því að segja að leikurinn endaði 3-4 fyrir tottenham. sem sagt steinn dauður leikur! vona að hann hafi ekki dottið í óeirðir eftir leik.
við áttum svo leik v KR í dag upp í höll. eins og venjan er setti simmi hann :-( annars komst hann nú lítt áleiðis á móti (hásum) halli. tökum þá næst.
Fórum á Pabbann áðan. snilldar leikrit. bjarni haukur með stórleik. og ef raunveruleikinn er eins og hann sýnir hann þá er smá o boy in order!!
annars bara góður. nýja stígvélin í fyrramálið í wc. sé ég ykkur?
posted by 4fl at 11:04 e.h.
|