föstudagur, nóvember 26, 2004
góðan daginn.
hvað er að frétta. erum að detta á jólahlaðborð með
skólanum í kvöld. það verður sweet. geiri verður á
staðnum að passa upp á eystein!
bara 19 * 24 verkefni að fara yfir um helgina. það er rosalega
há tala. óska eftir aðstoðarfarayfirfólki á sunnudag. hallur tekur
alla veganna enskuna. og maggi, .. já vertu bara í útlöndum félagi.
var píndur í good bye lenin í gær. fæ alla veganna að velja næstu!
sem verður pottþétt Thunderbirds !!!
íslandsmótið innanhús á morgun. ég meina, ef fólk vill sjá tækni dauðans
og klobbatilraunir hægri vinstri, þá bara mætir það upp í höll um 15.00 á
morgun. en ef fólk vill sjá hreinsanir og tuddaskap, þá mætir það upp í höll um 15.07
á morgun, þ.e. þegar eysteinn og hallur koma inn á.
sögur með bubba ´80-´90 koma sterkar inn í dag. læt alla veganna
sjá mig í skífunni. þarf líka að láta ella plögga afslátt á strákinn.
en, GÓÐA HELGI. fyrsti í aðventu á sunnudaginn. kíkið í sigluvoginn til að sjá
aðventukrans ársins. aju.
posted by 4fl at 2:50 e.h.
þriðjudagur, nóvember 23, 2004
hellú.
ágætisþriðjudagsstemmning í gangi í stofu
b23! tókum keane og audioslave í hlustun í ensku.
ágætis combo.
spennandi hvort það verður ísbolti eða fótbolti í kvöld.
orðinn soldið þreyttur á því fyrrnefnda.
so er meistaradeildin takk fyrir. hver er með sýn 2?
erum að fara að stað með leikrit í skólanum. pressa á okkur.
það er hefð fyrir að 6.bekkur sé með jólaleikritið á jólaskemmtuninni.
verðum frumleg að þessu sinni og tökum þyrnirós. reyndar með rapplögum.
en við kryddum etta aðeins. þarf líka að troða mér í eitthvað hlutverk. það er
reyndar soldið low þar sem þetta er þeirra thing (ingvi íslensku kennari takk fyrir).
var að missa af ferð til vínar fyrir 16 kall á manninn. það er náttúrulega ekki neitt.
veit samt ekki hvort ég hefði fórnað íslandsmótinu innanhús í mfl en það er á laugardag.
rosaleg viðbrögð við slúðrinu mínu! en sveinn ingvason er því miður ekki
á leiðinni strax! læt þetta uppi fljótlega :-)
posted by 4fl at 4:44 e.h.
mánudagur, nóvember 22, 2004
jó.
djöfull píndi ég mig í klassann áðan. kl.21.11.
engan veginn í stuði. en massaði etta.
er so að sofna yfir bjarna fel. þykist svo ætla að vakna
7 í fyrramálið og kíkja í sund. sjáum til hvernig það fer.
ekki búinn að fá fríhafnarnammi frá eysteini ennþá. þurfti í staðinn að
sjá hann í sveittri hreiðarsson peysu nr.12 í allan dag. gengur hreinlega
ekki.
hvað ætliði að gera í slúðri ársins?
heyrumst.
posted by 4fl at 11:21 e.h.
|