fimmtudagur, mars 20, 2008
já.
páskarnir að detta í hús. enduðum á ógeðiscooper testi í mfl á þriðjudaginn. vantaði 6 sek upp á hjá kallinum að ná lágmarkinu. hleyp það sem sé aftur eftir mánuð :-(
litli meistarinn okkar eins árs í gær. í því tilefni var blásið til veislu. guðrún missti sig í veitingunum og bjó meðal annars til tveggja metra langann súkkulaðikökuorm. ég stal samt spotlightinu með mínum fimm snilldar möffins! mér fannst hann eiga mikið af dóti fyrir afmælið, en núna er þetta bara komið út í rugl.
húðflúr nr.2 komið í hús. varð að massa það sóló því hallur sveik mig og hélt ekki í höndina á mér að þessu sinni. en það reddaðist. verðið að hitta kallinn og biðja um að ég flassi því fyrir ykkur. hata það ekki.
snjóbretti á morgun ef veður leyfir. líka cosý bústaður. ekki leiðinlegt. svo bara lakkríspáskaegg á sunnudaginn. bara eitt í ár, nema mútta droppi einu óvænt í sigluvoginn.
en hafið það gott.
posted by 4fl at 9:09 e.h.
|