fimmtudagur, mars 16, 2006
Sæl.
hvernig er stemmarinn! ég er alla veganna að fara að henda pedsu í pedsuofninn. þ.e. dobbla guðrúnu í að henda pedsu í pedsuofinn! sjá svo halla og egil missa sig í sjónvarpssal í gettu betur!
komst ekki á bretti í þessum snögga snjóstemmara sem lét sjá sig á laugardaginn. held bara næsta ár svei mér þá :-(
Herrakvöldið gekk bara ljómandi síðasta laugardagskvöld. þokkalega góð mæting, fyrir utan nokkra vel valda! nefni engin nöfn but you know who you are!
ég vakti að venju mikla athygli fyrir illa snyrt skegg og ósjaldan var pólfara brandarinn sagður! ég var svo dj kvöldins og bara ekkert stress í gangi út af því! stóð mig bara bærilega þó ég segi sjálfur frá. fékk samt afar lítið hrós frá mannskapnum.
Sveinn var eins og hann á að vera. brilleraði í happadrættinu og var með tvo vinningsmiða (tók samt ekkert eftir því). ég endaði að sjálfsögðu sem leigari þrátt fyrir að hafa hlammað bjórdósunum hans pabba fyrir framan mitt borð! fólk var ekki að kaupa það og ég skellti mér upp í grafarvog, kópavog, bæinn og whatnot.
setti svo upp þessa nettu kommóðu á sunnudaginn. leyfði guðrún að vera með en tók etta í raun einn með vinstri!
egill b skoraði 2 og brenndi af víti á sunnudaginn. bara eins og kallinn var í öðrum! nema hvað mar var kafteinn líka og þurfti að skammast í halla, passa upp á hans og jens og leggjann upp á bjögga!!
var á 4 tíma skyndihjálpanámskeiði í dag. gott mál en hefði verið hægt að skvísa því á 2 tíma!
Er að fara í moggann með bekknum á morgun. sem þýðir mynd í mogganum í næstu viku. skal troða mér fremst einvhvers staðar.
Fór á Munich í vikunni. kallið mig bara ingvi bana.
Annar gaur farinn úr þrótti sem mar er búinn að æfa með síðan haffi var að vinnna sem húsvörður niðrá gamla þróttaravelli :-( en svona er etta.
Breiðablik á morgun. látið nú sjá ykkur upp í egilshöll. þið ættuð að koma auga á kallinn einhvers staðar inn á.
heyrumst
posted by 4fl at 8:56 e.h.
|