föstudagur, júlí 08, 2005
hæ.
helgin að mæta. spurning með að taka endursýninguna á live8 á morgun. og að sjálfsögðu kíkja á guðbjörgu upp á skaga.
1.fl leikur í gær. menn nokkuð sprækir. tókum fh í miklum markaleik. elli setti tvö! setti ég hann? helduruþa.
styttist í sin city. og það verður pungað út í lúxus sal.
var ferlega nettur í keilu í gær. eymi var samt á einhverju og náði hundraðsextíuogeitthvað stigum. hvað er það?
fyrsta æfingin hjá atla á ettir. spennó. ekvað nýtt kaffi örugglega.
anyway, góða helgi.
posted by 4fl at 4:33 e.h.
fimmtudagur, júlí 07, 2005
hey.
eymi mættur. dróg mig! að kíkja á egil á selfossi í gær. eins gott að þeir tóku etta 3-1. so allir pedsustaðir á fossi og hveró lokaðir um níu leytið. ekki nógu gott.
það átti að vera esjan í dag hjá fjórða. en hún sést ekki þannig að það er keila í staðinn. eins gott þar sem að það er leikur í kvöld. eymi tók reyndar esjuna og sund fyrir bikarleik í öðrum í fyrra (og leikurinn fór í 120 mín) - hraustur hann eymi.
býst við að allir séu búnir að heyra fréttirnar. það verður ekki hraðaaukning yfir og tilbaka út þetta sumarið! svona er etta. ía á þriðjudaginn. berjast.
posted by 4fl at 11:49 f.h.
miðvikudagur, júlí 06, 2005
jó.
gersamlega að drepast úr ofnæmi. setti reyndar met í útiveru í gær. svo má mar bara kaupa einn pakka af ofnæmistöflum, sem þýðir að það er trip í lyfju þriðja hvern dag. ekki nógu sniðugt.
tók gott golf í gær. fyrsta skiptið sem ég fer 18 holur. enda ekkert sérlega þolinmóður gaur. en stóð mig bara ágætlega þrátt fyrir tap. kiddi og rabbi rétt mörðu okkur eystein. svaðaleg spenna í lokin.
ekki nógu sniðugt að vera í svona miklu fríi. þetta þýðir "lunch" trekk í trekk. ég fer reyndar alltaf í holla dótið og sting alltaf upp á "á næstu grösum".
posted by 4fl at 2:32 e.h.
þriðjudagur, júlí 05, 2005
jebba.
stefnir allt í golf í kvöld. alla veganna bása. mar ekki búinn að fjárfesta í miða á foo eða queens. þrátt fyrir að skarta þessu líka netta david grohl skeggi!
djöfull er ég orðinn þreyttur á öllu röfli um gerrard. ákveddu þig maður.
kominn með itrip í láni frá sindra. þokkaleg græja. langt í skil!
öss. missti takka af nýju adidas skónum í gær. ekki nógu töff. lét líka engan vita. og jesús hvað aukatakkar kosta mikið. bara bull.
posted by 4fl at 5:03 e.h.
Sæl.
hvað er að frétta? kjappinn soldið latur að undanförnu.
golfinn minn, eða herlem golfinn eins og hann er kallaður, er alveg að deyja. nýjasta nýtt er að nú fæst ekki rúðan, sem er farþegameginn, upp. egill tekur það alveg á sig. en það gerir það að verkum að það er alltaf svalt og gott inní bíl!
golfmót mfl var á föstudaginn var. kallinn var að sjálfsögðu valinn best klæddi golfarinn. eins var ég í pirraðast hollinu með ella og dúsanovits. eysteinn tók etta (hvað er það?). svo var móralskur um kvöldið. fyrst grill hjá geira og so djamm hjá danna. en fyrst dróg hallur okkur á aftureldingu - tindastól - og svo dró guffi okkur á gróttu - kv. sehr mikið stemmning á þessum leikjum!
eymi kemur í dag. var sáttur við hann. bjallaði þegar audioslave tók "like a stone".
duttum á akureyri um helgina. jamm. hansi var með fimmta á essó, og bjöggi með old boys á pollamótinu. hansi var nú mest í símanum eða röfla við the reffs. kiddi var bara með kjaft. en rækjan var hress.
erum við ekki að grínast með the office. djöfulsins snilld mar. manni líður hálf illa að horfa á etta kaffi. t.d. þegar hann var gestafyrirlesari. jesús.
ótrúlegt en satt þá var beisi flair á æfingu í gær. já í 3/4 buxum og allt. palli var í samfesting. þarf að segja meira. ég var arfi í gær í nýju skónum. tapaði 7 leikjum af 8. það er rosalegt. og gerði mig af fífli og sparkaði upp stóru grasstykki (reyndar eftir slæma tástígingu). lofa að standa mig betur í kvöld.
posted by 4fl at 10:34 f.h.
|