þriðjudagur, september 16, 2008
jó.
var stunginn í bakið af herbergisfélaga mínum til margra ára. okey ég var reyndar ekki í umræddri ferð en samt ekki sáttur! ég frétti líka að það hafi engin hugsað um hann og siðað hann til í ferðinni!
en þróttur kláraði nánast dæmið á sunnudaginn - fékk 3 stig á móti ía, 22 stig komin og þrír leikir eftir. við gerðum lala ferð til egilsstaða á sunnudaginn, kepptum á villa park (völlurinn heitir sko vilhjálmsvöllur). elli sá til að við fórum alla veganna heim með 1 stig. enn og aftur var leikmaður helmingi yngri en ég að fífla mig. held samt að hann hafi verið þriðji leikmaðurinn í röð sem fer útaf meiddur, eiginlega eftir samstuð við kallinn.
fór í bíó í gær, sem þykir reyndar ekki fréttnæmt, nema hvað maður þurfti að vera með gleraugu til að ná myndinni. menn eiga að fatta um hvaða mynd ég er að tala - segi bara að sóley hafi dobblað mig og óskar á hana.
meistaradeildin að byrja í kvöld, og liverpool ríður á vaðið - veisla veisla.
posted by 4fl at 3:38 e.h.
|