laugardagur, desember 27, 2008
já.
menn væntanlega búnir að borða á sig gat! hef eitthvað reynt að hreyfa mig, það er algjört möst.
gengur ekki alveg nógu vel með jólapúslið - en entourage glápið mitt rúllar hins vegar vel.
liverpool með nettan sigur í gær. arsenal menn í jólaboðinu sem ég var í voru ekki eins sáttir. alltaf hresst að fá á sig mark á 91 mín! annars fóru bjöggi, Dögg og Bjarki á arsenal v liverpool fyrir jól. sviku félagann! nei nei, ég hefði nú getað fengið miða, ef flugfarið hefði ekki verið á milljón! svo styttist í liverpool v real madrid. það verður pakki. svo flengir inter sínum leik!
hin hressu jólamót í egilshöllinni fara nú að dempast yfir. svo styttist í ungir v gamlir á miðvikudaginn. sagan segir að siggi hallvarðs ætli að taka nokkrar mínútur.
posted by 4fl at 2:18 e.h.
miðvikudagur, desember 24, 2008
Jamm.
Aðfangadagur mættur á svæðið, ekki leiðinlegt.
Byrjaði þorlák á því að hitta Rafal, sem er by the way orðinn aðstoðarþjálfari pólska landsliðsins. hlýtur að plögga mig í einhverja þjálfaraferð bráðum :-)
Datt svo í þorláksmessuskvass með magga. til að gera langa sögu stutta þá fór leikurinn ekki einu sinni í odd! verð að senda hann í nokkra æfingatíma í des að ári.
Svo var það laugarvegurinn um kveldið. Vann að vanda keppnina okkar Halla, í ógeðisveðri. En fleiri trítluðu með og áttu misgott mót. Elli átti nokkra spretti. Held að Guðrún og Aldís hafi átt sitthvoran tvistinn. En maggi átti eiginlega að vinna því Ólafur Ragnar Grímsson sagði "sæll" við hann inn á Ítalíu.
allt á að vera klárt - segi bara gleðileg jól. hafið það gott.
posted by 4fl at 3:54 e.h.
|