föstudagur, apríl 07, 2006
hija.
er sem sé farinn að leigja sigluvoginn út í meistaradeildarchill. sumir skulda mér reyndar enn fyrir miðvikudagskvöldið! set menn í að rukka það um helgina.
jújú, klassa leikrit hjá h-agaskóla. nánast rugl að hafa sona stórt stykki hjá unglingadeild.
stelpurnar unnu á æfingu í gær. voru reyndar einum fleiri (þeir + dómarinn). klassa aukaspyrna hjá halli tryggði þeim sigurinn. reyndar engin kominn í vegg, sindri ekki ready, dómarinn flautaði ekki og boltinn færður 2 metra fram. já svona er etta.
Idol úrslitin í kvöld. veit ekki hvor á etta skilið! tippa samt á stúlkuna.
mæli með tebirki, sem mar getur keypt í köbenhaven bakaríinu. ætla ekki að segja ykkur hvað ég slátraði mörgum í gær.
gleymdi alltaf að hrauna á síðasta þátt af lost. ertað grínast með etta þokudrasl. djöfull lækkaði etta dót í áliti. það þarf ekvað svaðalegt að gerast til að bjarga essu.
jói hreiðars kominn í þrótt. ánægður með það. hann er topp maður. er ósjaldan búinn að spila á móti honum. og nú eru sem sé 4 gaurar sem mæta sprækir frá usa í maí. spurning hvort þeir verða í jafngóðu formi og þegar ég kom um árið!
fjórir leikir í fjórða á morgun og hallur ætlar að dæma 1 leik. þetta eru staðfestar fréttir, en ég er ekki viss hvern hann var búinn að fá með sér í þetta verkefni!
"inga" magnúsdóttir er bara hin hressasta hef ég heyrt. búinn að sjá myndir og er hún þokkalega myndarleg, eitthvað sem hún hefur þá fengið frá móðurinni væntanlega!
ég segi bara páskafrí, og góða helgi. aju
posted by 4fl at 4:30 e.h.
miðvikudagur, apríl 05, 2006
jamm.
gulur dagur í vinnunni í dag. leyfðu öðrum að njóta sín. mæti bara í inter away og lúkkaði svona lala.
vorum svo að horfa á Jaws í enskunni í 8.bekknum. þvílík klassík. nauðsynlegt að horfa á hana á nokkurra ára fresti.
var svaðalega fúll á æfingu í gær. það er nú vanalega frekar leiðinlegt að tapa á æfingu, en með tilkomu excel skjalsins þá er hefur það versnað til muna skal ég segja ykkur. eysteinn er nánast dottinn út úr því vegna fjöld blárra kassa (ah, komiði af fjöllum). en svona er etta bara.
tókum kvisnos á etta í gær. bara massa gott. ég vildi nú bara pastað en var dreginn á staðinn. 2 leikir í kvöld en sé ekki fram á áhorf :-( nema kannski rírönnið um tólf.
jæja, þotinn í veislukaffi inn á kennarastofu. aju
posted by 4fl at 2:04 e.h.
þriðjudagur, apríl 04, 2006
hæ.
Hef það eftir áreiðanlegum heimildum (þó ekki beint í 869-8228!) að fædd sé lítil stúlka í Kaupmannahöfn.
Hún mun alla veganna vera Magnúsdóttir og er víst í góðum fíling, sem og foreldrar.
Segi bara innilega til hamingju. toppar þetta nokkuð!
og nú er bara að finna flug!
posted by 4fl at 3:31 e.h.
mánudagur, apríl 03, 2006
hæ.
skráning er hafinn í skokk-klúbb Arnljóts!
menn voru svo ansi snöggir upp úr meiðslum eftir að atli tilkynnti að það yrði bara skipt í tvö og málið dautt, á æfingu áðan! gulir voru náttúrulega teknir í kennslustund í fyrri hálfleik, og einhverjir vældu út 0-0 í hálfleik (gruna þar hróðmarsson). öss - ekki eins og það hafi bjargað sumum í excel skjalinu!
lost eftir smá. á skilið góðan þátt eftir erfiðan dag!
fékk bíltúr í vollanum hans egils áðan. veit ekki með þann bíl. set hann eiginlega í flokk með golfinum mínum sáluga. kerra var það samt.
datt á V for Vendetta í gær. bara alveg ágætis mynd. og natalie ... lék vel.
posted by 4fl at 9:55 e.h.
jó.
langt síðan mar hefur fengið ekvað sona klukk dæmi! kíkjum á etta:
4 störf sem ég hef unnið: Kennari - Knattspyrnuþjálfari - Gaur í pökkun hjá Emmess Ís (át voða lítinn ís það sumar!!) - Gaur í Gúmmísteypu Þorsteins Lárusson (þarf eiginlega heila bloggfærslu með þetta starf).
4 myndir sem ég hef séð oftar en einu sinni: The Beach (tær snilld) - White Men can´t jump (man að ég og hallur "svindluðum" okkur inn á þessa eftir að hafa keypt okkur inn á skautamyndina "cutting edge" - man líka að við töpuðum fyrir KR í 4.flokki sama dag - er ég ekki að muna of mikið frá þessum degi!) - The Shawshank Redemption (ertað grínast hvað það er góð mynd) - Pölparinn.
4 staðir sem ég hef búið á: Í raun bara Reykjavík og Erie. En pleisin eru þá Hlunnavogur - Skeiðarvogur - 501 Myrtle Street (átti kjallarann) - Rauðalækur.
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríi: Mallorca (who hasn´t) - Köben - Geilo, NO (páskahamborgarinn hennar guðbjargar maður) - New York.
4 heimasíður sem ég skoða daglega: my blogs! - langholtsskoli.is - trottur.is - fotbolti.net
4 uppáhalds réttir: Quasadillas - Buritos - Grjónagrautur kemur sterkur inn í augnablikinu - Pedsann er ferlega traust!
4 Bækur sem ég les oft: Hum...
4 Staðir sem ég óska þess að ég væri á núna: Brooklyn Diner (klassa val á rétti óskar) - Beener´s (uss, tveir gúffstaðir) - Á (miðjum) fótboltavellinum i action (helst nýbúinn að taka zidane move) - Að sofna yfir ræmu í rauða sófanum mínum/magga.
sleppur þetta ekki! klukka svo bara hann eyma gamla. ég er annars orðinn svo svo ferlega lélegur að kíkja á önnur blogg. en annars nett ef fleiri dæla þessu inn hjá sér!
aju
posted by 4fl at 12:09 e.h.
sunnudagur, apríl 02, 2006
já. nettur leikur í gær. fyrir utan dýfurnar í mönnum. zidane sást lítið en var flair. og note to one self: ekki láta eyma og egil sjá um íssósuna.
pop quis: hvað mættu margir í sprettina áðan? gottetta.
bíddu, á hverju klikkuðum við á herrakvöldinu okkar! hvað er maður að heyra? pottþétt að takefusa hafi splæst í treyju?
bara öll lið á íslandi að fara til útlanda um helgina. iss, best á klakanum maður. laugardalsvöllur áðan, gervigrasið á morgun og egilshöllin á þrið.
annars bara hress. vika eftir af kennslu. menn að tala um norðurferð. kominn tími á nokkrar heimsóknir á því svæði landsins. meltum það.
áfram með etta svo.
posted by 4fl at 6:01 e.h.
|