fimmtudagur, apríl 14, 2005
komiði sæl.
ekki sáttur við að þurfa að skafa bílinn 14.apríl. hvað er málið?
hlupum út að hesti í gær!! gott geiri. danni steig á stein. gott danni. og svo tókum við fúss á golftúninu fyrir neðan suðurlandsbraut. spegilslétt og fínt! mitt lið hefði átt að gera betur. en vorum með geira í markinu í síðasta leik. kennum honum að sjálfsögðu um tapið.
liverpool er komið áfram gott fólk. þetta fer örugglega mikið í taugarnar á fólki, sérstaklega mansesterpakki. ég er alla veganna mjög sáttur.
london á laug. hlýt að detta á miða á stanford bridge á mið. ekki nógu spenntur fyrir að detta með fjalla á white hart lane! sjáum til.
posted by 4fl at 10:50 f.h.
þriðjudagur, apríl 12, 2005
Jebba.
asnaðist til að skella mér með fjórða flokknum í spinning áðan. það er klárt að ég verð ekki ferskur á mfl æfingu. fleygi mér samt í dóra og beisa ef þörf verður á því! ég svitnaði eins og ég veit ekki hvað enda prodigy á fóninum. þá missir maður sig bara í standuppogtakaarmbeygjuríleiðinniáhjólinu dæminu. hvet alla að prófa etta kaffi.
haldiði að það hafi ekki verið keyrt á döddu áðan og maztan formlega ónýt. hvað ætliði að gera í því? einhver ellismellur keyrði aftan á hana og hún á einn og hann á annann. náttúrulega bara ves. five-ó-ið mætti og sjúkrabíll. hún tekinn í fisikal og svona. en allt í orden. nýjan bíl á settið takk.
menn að búa til nýtt táknmál til að eiga samskipti við jósef. soldið fyndið. en þetta hlýtur að koma hjá kallinum.
tveir leikir í meistaradeildinni í kvöld. ekki slæmt. reyndar skemmir æfingin fyrri leikinn soldið. en stefni á að ræna pedsu af þriðja flokknum og kíkja á seinni. svo er inter - ac.
posted by 4fl at 5:06 e.h.
sunnudagur, apríl 10, 2005
já.
heimkoman var aðeins betri en ferðin uppeftir. náðum að láta taka upp leikinn fyrir okkur í blöndóscity. þvílíkur leikur maður. sáttur við mína menn. við tippuðum á leikinn og vann ég ekki með mitt 1-0. reyndar vann engin þannig að það er bara næsti stórleikur.
veit ekki með magnið af nammi sem leikmenn önduðu að sér yfir helgina. nefni engin nöfn að ótta við leiðinleg skrif á öðrum heimasíðum. ég var svo sem ekkert skárri en slapp þó.
erum að detta á kjarvalstaði á morgun. vettvangsferðir klikka sjaldan. vika í london. var ég búinn að segja ykkur það?
hvað mynd er það á morgun?
posted by 4fl at 10:01 e.h.
Hæ.
ansi langt síðan mar hefur skrifað. tek það á mig.
erum í road trip á akureyri. unnum völsung 2-1 í gær og eigum ka á ettir. ansi skemmtileg rútuferð! bara fimm tímar hvor leið. en gistum á hótel kea, sem er ansi fancy og ekki alveg þrótturstyle. dró nokkra stráka á all vafasama mynd í gær. spönsku myndina bad education. aðallega út af ég var búinn að sjá alla hinar. fór á in good company á fös, og var hún nett.
stefni á nokkrar myndir í vikunni á hátíðinni. sjaldan verið svona gott úrval í bíó.
vika í london. ekki slæmt. fjalli fer út í dag og verður í viku hjá watford. þeim vantaði ekki bakvörð í træl í þetta sinn.
annars bara stemmning. missum reyndar af barcelona - real madrid í dag. spurning hvort menn taki hann upp fyrir kjadlinn.
posted by 4fl at 10:51 f.h.
|