föstudagur, mars 24, 2006
hey.
djöfull hlýt ég að hafa nuddað áðan. ég meina hver er tekinn út af á 58 mín??? andskotinn. náði heldur ekki að tækla jensa almennilega. bara búinn að vera að bíða eftir því síðan hann kom í þrótt 1991! alla veganna, svona er boltinn.
farinn í pedsuna. aju
posted by 4fl at 9:49 e.h.
fimmtudagur, mars 23, 2006
hey.
maggi, eruði ekki komin með dæluna á telefonedelse.dk ?
braut kennaraborðið hans eysteins áðan! mar er líka orðinn hrikalegur. og ekki rangstæður eins og björgvin ívar.
árshátíð unglingadeildar í gær. Buff var að spila. ekkert smá góðir. maturinn nettur og eftirmaturinn - forget about it.
líf og fjör.
posted by 4fl at 11:20 f.h.
þriðjudagur, mars 21, 2006
yes.
kominn með dæluna. nokkuð nett kaffi! þarf samt að setja mig aðeins betur í etta.
er líka að mastera sideline organizer, sem er ekvað massa fótboltaforrit. vinn í essu tvennu.
annars bara nokkuð góður. nema hvað það er fáránlega kalt úti. ekki slæmt að vera í egilshöllinni í kvöld. eitt mesta tap ever átti sér stað á æfingu í gær. en þá töpuðu gulir (halli-elli-jóndavíð-óskar-ari-andri- davíðlogi-egillt-egillb) 14-1. hefur það verið fært inn í metabækurnar. spurning með re-match í kvöld!
Liverpool í bikarnum í kvöld. west ham komi áfram - sveinn ekkert sérstaklega fúll yfir því.
posted by 4fl at 4:55 e.h.
mánudagur, mars 20, 2006
jó.
brandarar í sambandi við skeggið mitt streyma inn! "ertað leika í leikriti" - "dó köttur framan í þér?" svo lék afgreiðslukona í sundlaug mig fyrir agli um helgina. hann sagði að það hefði verið frekar fyndið. alla veganna.
töpuðum á föstudaginn. frekar skrýtinn leikur. aðeins of stórt tap. og aðeins of ungur gaur sem setti tvö hjá blikum. mitt mark var samt flair.
eyddi helginni í þorlákshöfn. æfingaferð hjá fjórða. nett pleis bara. fengum geggjað veður en tókum skelfilega ræmu! "sound of thunder" - og spáiði í að egil fór á hana í bíó. já, mar komst bara í vorfíling í gær. duttum niður í miðbæ í gúff og rölt.
Lost í kvöld. hvað ætliði að gera í síðasta þætti? djöfull var það töff mar - countdownið og svo kviss bamm búmm. hlakka til í kveld.
vil biðja fólk að kaupa moggann í dag. kíkja á bls.38 og klippa kallinn út og setja á ísskápinn. ó já.
Það styttist svaðalega í HM. öss. 3 leikir á dag og svona. þarf virkilega að vera búinn að plögga nýjan sófa þá. og var að spá hvort einhver væri ekki til í að taka Guðrúnu að sér frá 9.júní til 9.júlí!! meltið það.
uppáhaldið mitt í mat í dag. ánægður með kokkinn. sjáumst
posted by 4fl at 12:10 e.h.
|