sunnudagur, febrúar 26, 2012
jev.
rúlluðum í gegnum Tree of Life í gærkveldi. það var pínu erfitt! hún er flott en kannski full of djúp! ég hefði getið tekið hlutverkið hjá Penn leikandi! soddann, læt þessa ítarlegu kvikmyndagagnrýni duga!
Fyrsti formlegi leikur varaliðs Þróttar í dag. Skandall hvað fáir létu sjá sig niður í dal. Við erum reyndar að tala um 2-1 tap fyrir öðru 3.deildar liði; Ísbirninum. Kallinn á ca. öðrum gír á miðjunni. Nokkrir taktar en hér hefst .... já eymi; Brad Pitt í maí. það er bara þannig.
komst loksins á leik hjá mfl. 3-2 tap v selfoss á föstudaginn. ekki alveg nógu spes leikur en hefðum átt að stela stigi í lokin. glórulaust brot dæmt á odd er hann hoppaði upp með markmanni selfoss. missti mig næstum. 14 leikmenn af 18 uppaldir - er það ekki eitthvað?
Annars er vetrarfrí hér um bil að ljúka. Hefst nú countdown að páskafríinu.
Liverpool deildarbikarmeistari áðan. frekar erfið fæðing en dolla í hús. Aron ansi flottur á miðjunni hjá cardiff.
posted by 4fl at 8:46 e.h.
|